25.4.2008 | 22:14
Menntskælingjar, grunnskrælingjar og bakaðar baunir
Atburðir síðastliðna daga hafa verið ákaflega merkilegir að mínu mati. Ljóst er að menntskrællaðir dimmiteringar hafa slegist í lið með nokkrum vörubílstjórum. Að auki hafa nokkrir grunnskrælingjar hamstrað eggjum í svo miklu magni að framkvæmdastjóri Olís þurfti að loka búllunni og hefja kreppuskammtanir.
Ef ég hefði verið ólétt hefði ég misst vatnið þegar Hitler og félagar mættu á svæðið.
Mig langaði að pakka hinum íslensk-rómversk ættaða lárviðaskreytta ljóðvæling inn í bómul - hann var eitthvað svo einlægur.
Það varð þó eitt atvik til þess að við fjölskyldan settumst niður í fyrrakvöld og ræddum alvarlega eitt áríðandi málefni.
Tekin var sú ákvörðun að þeir sem okkur heimsækja og hafa borðað bakaðar baunir þurfi nú að temja sér vinnubrögð lögreglunnar og öskra í dyrasímann: GAS GAS GAS áður en ákvörðun er tekin um að hleypa viðkomandi inn í bygginguna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Guðrún Hulda Eyþórsdóttir
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.