24.5.2007 | 10:18
Ekki hreinsað þrátt fyrir sól og gott veður
Loksins er fjallað um þetta. Fólk hefur verið að tala um aukið rusl sí og æ í allan vetur. Ferðum fólks hefur fjölgað talsvert út í garð yfir vetrartímann að tína rusl eftir aðra.
En það sem ég skil ekki er að það sem af er af þessum mánuði með tilheyrandi sól og góðu veðri eru glerbrot búin að liggja á gangstéttum í Lönguhlíðinni og við göngubrúnna yfir Miklubraut við Fram-heimilið í rúmar þrjár vikur!
Ekki hefur veðrið hamlað hreinsun gangstétta.....
![]() |
Vaxandi sóðaskapur í borginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.5.2007 | 09:44
Hin vanrækta Reykjavík
Spennandi verður að sjá hvernig ný skipan og stefnumótun innan ráðuneyta æxlast. Ljóst er að ekkert hefur gerst í blessaða landbúnaðaráðuneytinu sl. ár þar sem stefnan hefur greinilega verið "reaction" stefna í stað "proaction" stefna. Guðni hefur eingöngu brugðist við breyttum aðstæðum og breytingum á EES löggjöfum sem hafa borist frá Brussel, klippt á borða og sagt brandara.
Það sem veldur mér hvað mestum áhyggjum er samgönguráðuneytið. Lengi vel hafa landsbyggðarþingmenn þyrpst í kringum samgöngunefndir og ráðuneytið sem sést vel á stefnumótun í samgöngumálum sem er 95% landsbyggðarmál og 5% höfuðborgarmál sem einkennast hvað helst af bútasaumsaðferð, þ.e. að fylla upp í holur hér og þar í malbiki. Helstu breytingar eru í kringum höfuðborgina - lítið inn í henni.
Það sem vekur hvað mesta furðu er að fjölmiðlafólk og þingmenn hafa æ ofan í æ tuggið á Sundarbraut en minnst talað um málefni sem snúa að innviðum og infrastrúktúr höfuðborgarinnar: Miklubrautar-og Kringlumýrarbrautarvandamálin. Þarf ekki að leysa þau ásamt hljóð- og loftmengun áður en farið er í að bora aðra hverja heiði úti á landsbyggðinni hvað þá að hleypa straumi bifreiða greiðlega inn í borgina sem svo stíflast með vanrækslu-brag þingmanna inn í borginni?
Ég vona svo sannarlega að Kristján Möller sé með öll ljós kveikt þegar hann markar nýja samgönguáætlun og setji borgina loksins í forgang.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.5.2007 | 09:31
Euro-rembingur og sterilizering tónlistar
Austur-evrópsku þjóðirnar eru einfaldlega miklu betri en við hér í vestur-evrópu, amk þegar kemur að því að semja og performa tónlist í Eurovision.
Hæfni þeirra liggur í því að vera þau sjálf og blanda sinni þjóðlegu tónlist við Vesturlanda tónlist.
Okkar tónlist er of steril og það er performið hjá okkur líka. Við hér á Vesturlöndum er of mikið að reyna að vera "professional" og tónlistin er öll eins og þar af leiðandi leiðinlegt.
Eftir tilkomu austur-evrópulandanna í Evróvision er loksins hægt að horfa á keppnina án þess að dotta yfir sjónvarpinu. Það er helst að það gerist í dag þegar einmitt hin sterilizeruðu og einsleitu vestur-evrópsku löndin eiga míkrófóninn.
Kannski mættum við líta okkur nær og skoða þá arfleið er formæður og -feður skildu eftir sig í íslenskri tónlistagerð. Sendum popptónlist í bland við vísnasöng, harmónikku og langspil!!!
Við getum lært helling af þessum þjóðum sem í dag eru að springa út eftir áratuga kúgun og innilokun....lærum að meta það!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.5.2007 | 15:24
Allir flokkar hafa svarað á hlidar.com
Afar áhugaverð lesning. Ég ætla ekki að fara að legga dóm á svör þeirra þó vissulega séu þau misnákvæm eða kannski frekar loðin?
Það sem blasir við er að ég snýst í hringi daglega og veit ekkert hvað ég á að kjósa.....kannski maður kasti bara upp á það í kjörklefanum eða láti barnið ráða
1.5.2007 | 18:11
Til hvers eru kosningaskrifstofur?
Ég ákvað í morgun að eyða deginum í að kynna mér stefnumál flokkanna. Hef áður gert slíkt og stóð þá heimsókn á kosningaskrifstofu Sjálfstæðismanna upp úr. Það var ekki vegna þess að flokkurinn væri svo frábær eða með svo skemmtilega og áhugaverða stefnu heldur vegna afskiptaleysis frambjóðenda. Þeir höfðu greinilega engan áhuga á forvitnum og ráðvilltum kjósendum. Kannski eru atkvæði þeirra trygg og sjá þar af leiðandi ekki tilgang í að spreða orku og tíma í eitthvað pakk eins og mig og aðra kjósendur.
Ég byrjaði daginn á kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins. Þar var allt fullt af eldri konum með svuntur sem voru afskaplega elskulegar en því miður, ekki í framboði. Eini frambjóðandinn sem sá greinilega ástæðu til þess að mæta á skrifstofuna var Pétur Blöndal sem faldi sig á bak við tölvu og masaði í símann. Ég réðst því á kosningabæklingana í von um að finna eitthvað um stefnu flokksins. Ég hafði ekki erindi sem erfiði það eina sem ég fann voru bæklingar um frambjóðendur og listi yfir það sem þegar er búið að gera. Flokkurinn hafði eytt nokkrum línum í mjög stuttan og loðinn texta um hugsanlega framtíðarsýn.
Næst lá leiðin á skrifstofu Framsóknarflokksins. Um leið og ég gekk inn um dyrnar blasti við múgur og margmenni og mikið rætt og spekúlerað. Formaður flokksins gekk rakleiðis að okkur hjónum og tók í spaðann á okkur og bauð upp á kaffi. Við settumst niður og skoðuðum stefnumál flokksins sem eru vel framsett og skýrt að orði kveðið.
Samfylkingin var næsta fórnarlamb. Ég verð að segja að mér brá svolítið enda blasti við hópur af gömlum MH-ingum og núverandi frambjóðendum, syngjandi hástöfum eitthvað lag um Samfylkinguna. Mér leið eins og ég væri mætt á kennarasamkomu þar sem sungið er og klappað "áfram, áfram bílstjórinn". Fékk smá bjánahroll og maðurinn minn átti vægast sagt erfitt með sig en sat á stóra sínum. Settist niður og las þá bæklinga sem þar voru. Ágætisstefna en afar lítið af stefnumálum. Hins vegar ítarlegur bæklingur um stefnu flokksins í málefnum barna og ber að hrósa þeim fyrir það. Engin syngjandi frambjóðanda ræddi þó við okkur enda uppteknir að tala við hver annan.
Næst fórum við á skrifstofu Frjálslyndra. Okkur var strax boðið upp á kaffi og með því og fékk ég málefnahandbókina í hendurnar. Afar metnaðarfull handbók og vel fram sett. Magnús Þór kom strax og ræddi við okkur - sýndi áhuga á því að kjósendur væru þarna inni.
Ég hafði áður kynnt mér stefnumál Vinstri-Grænna og hafði eingöngu rekist á bæklinga sem kynna frambjóðendur og svo bók um umhverfismálin - afar metnaðarfullt. En ég fann samt ekkert um samgöngumál, velferðarmál, heilbrigðismál eða fjármál ríkisins. Þessi ferð átti að vera til að gefa þeim tækifæri til þess. Ég gekk því inn á NASA og þar var tómt, engir frambjóðendur en okkur var nú samt boðið að vaska upp sem við afþökkuðum kurteisislega.
Eftir þessa ferð mína í dag er ljóst að hlutverk kosningaskrifstofa er afar óljós. Hjá langflestum er þetta samkundustaður fyrir frambjóðendur til að skemmta sér og þeir sem sauðast inn geta fengið sér kaffi og átt sig. Hjá einstaka flokkum er áhugi fyrir því að það eru kjósendur sem veita þessu fólki umboð til að fara með völdin fyrir sig - og leggja líf og limi í hendur þeirra.
30.4.2007 | 13:17
Háskólamenntaðir: hinn þögli hópur í samfélaginu
Til er þögull hópur í samfélaginu sem heitir háskólamenntaðir. Þetta er hópur fólks sem hefur atvinnu - en ekki atvinnu við hæfi, þannig að hún samræmist menntuninni.
Þessi hópur hefur sig ekki frammi vegna atvinnumálanna og get ég ómögulega reynt að túlka þessa þögn eða ástæður hennar.
Aftur á móti finnst mér afar skrítið þegar verið er að styðja við bakið á iðnaði sem krefst ómenntaðra eða iðnmenntunar þar sem þessi hópur hefur svo mikið að gera að sækja þarf vinnuafl hingað og þangað um heiminn til þess að koma öllu í verk.
Þessi iðnaður sem og nýsköpunarstuðningur ríkisins miðast við tæknimenntaða þannig að enn sitja allir hinir eftir og skilja hvorki upp né niður og hér er ástæðan.
Á þessu landi okkar er í sífellu verið að ræða um skóla, menntun og mikilvægi náms. Hér er verið að ræða nauðsyn þess að reisa háskóla um dittinn og dattinn og styðja við framþróun.
En þegar allt þetta fólk kemur úr háskóla og býr yfir verðmætri þekkingu - fær það lítinn stuðning til þess að nota hana.....sorry enga vinnu og ef þú ætlar að gera eitthvað sjálfur - sorry verður að vera eitthvað tæknilegt......
Ég legg til að við hættum þessari afneitun og förum að hlusta á þingmennina okkar.
ÞEIR VILJA OKKUR EKKI!
Eins og í Rússlandi er ekki gert ráð fyrir að háskólamenntaðir þurfi vinnu......
KOMUM BARA HREINT OG BEINT FRAM! Breytum Háskólunum okkar í tívolí OG ALLIR ERU HAPPY!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2007 | 10:09
Jónína Bjartmarz og stúlkan frá Guatemala
Lyndon B. Johnsson sagði eitt sinn eitthvað á þá leið: What's the use having power, if you are not going to use it?
Þessi orð voru ofarlega í huga mér þegar stormurinn um stúlkuna sem fékk ríkisborgararéttinn hófst. Að mér skilst, þá getur Allsherjarnefnd Alþingis veitt útlendingum ríkisborgararétt sem hafa fengið umfjöllun hjá Útlendingastofnun (vona að ég sé að fara rétt með). Þingmenn greiða því svo atkvæði.
Ég hef í gegnum nám mitt aflað mér talsverða upplýsinga um fólkið í Guatemala og er óhætt að segja að ég öfundi þá ekki sem þar fæðast.
Þvílík spilling, dráp, nauðganir og önnur mannréttindabrot sem þar hafa verið framin í skugga þess takmarkaða athyglis er þetta land fær hjá fjölmiðlum.
Mannréttindabrotin sem þar eru framin eru af slíkri stærðargráðu og framin með miklu hugmyndaflugi þeirra er völdin og byssurnar hafa.
Sumt af því sem hægt væri að telja upp er ekki prenthæft.
Mitt álit er að hver sem varð til þess að veita stúlkunni íslenskan ríkisborgararétt var að bjarga einni mannsál frá hugsanlegum þjáningum, hvort sem það var Jónína, Guðrún Ögmundsdóttir, Bjarni Ben......
Ég tek ofan fyrir fólki sem hugsar og notar vald sitt til góðverka!
27.4.2007 | 12:58
Vísir-Vefmiðlar- "Siv strunsar framhjá sjónvarpsmyndavélinni"
Athyglisvert, afar spes í ljósi þess að aldrei svo ég viti til hefu karl verið gagnrýndur beint á ská fyrir að svara spurningum á hlaupum. Þeir hafa heldur ekki, svo ég viti, verið gagnrýndir fyrir að svara sömu spurningunum á sama hátt.......
Skyldi Vísir-Vefmiðlar láta hana gjalda fyrir það að vera kona?
Jón Baldvin og Davíð hafa allavega komist upp með þetta árum saman......það er kannski, þrátt fyrir allt, merkilegra að vera með karlkyns kynfæri - maður kemst þá upp með ýmislegt í leiðinni.
Að minnsta kosti hjá Vísir-Vefmiðlum
24.4.2007 | 11:17
Kæran á Ísland í dag - mikilvægt mál
sérstaklega í ljósi þess að það yrði bagalegt ef þeir töpuðu þessu máli því þá steðjaði hætta að þeim sem stunda rannsóknarblaðamennsku - og alltof fáir stunda hana nú þegar....því miður.
Ef rétt er að starfsmannaleigan sjái líka um að redda húsnæði - hvar eru Pólverjarnir að vinna? Hjá bræðrum Stefáns sem eiga Atlantsskip og Atlantsolíu?
Ef þeir eru fluttir inn af Kjærnested fjölskyldunni sem reddar þeim húsnæði og vinnu þar að auki - og siðferði Stefáns endurspeglar ríkjandi siðferði innan fjölskyldunnar - hvaða laun ætli þeir séu að fá?
Hvernig ætli vinnuaðstæður séu? Ef þessi tengsl eru eins og ég hef reifað hér, ætli það sé löglegt eða amk ekki hagsmunaárekstrar í gangi?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2007 | 15:45
Do you want to learn mechanical engineer
Bráðhuggulegar auglýsingar frá háskóla í Danmörku.
Snilld að hafa svona hroðalega ensku - vekur athygli!
Um bloggið
Guðrún Hulda Eyþórsdóttir
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar